8 dagar/7 nætur
15-22. september og 22-29. september 2024
Fararstjóri: Sigurbjörg Magnúsdóttir
Ferðalýsing: Ævintýraeyjan Ischia, stærsta eyja Napólíflóa en líklega sú lítt þekktasta. Þessi draumaeyja býður upp á margskonar upplifun sem við hjá Áfram Flakk ætlum að færa ykkur í formi hreyfingar, matar- og vínsmökkunar, slökunar og alls þess besta sem þessi græna eyja hefur upp á að bjóða.
Á Ischia er að finna ósnortna náttúru, langar baðstrendur, náttúruböð, framúrskarandi vínrækt og matarupplifun sem allt er ræktað af heimamönnum. Eyjan er oft kölluð Græna eyjan og ekki af ástæðulausu þar sem hún er einstaklega gróskumikil og býður upp á stórfenglegt panorama útsýni í allar áttir. Ischia býr ennþá yfir sínum upprunalega sjarma þar sem hún er að mörgu leyti ennþá ósnortin, ólíkt Capri t.d. sem er gríðarlega vinsæll áfangastaður meðal ferðamanna. Verðlagið á Ischia er viðráðanlegt og töluvert ódýrara en gengur og gerist á öðrum ferðamannastöðum Amalfi strandarinnar.
Á ferð okkar um Ischia munum við upplifa helstu gimsteina eyjunnar ásamt að njóta alls hins besta í mat og drykk. Þessi ferð er því sannarlega stórkostleg upplifun fyrir sál og líkama.
Skoða framboð og bóka
Dagur-1
Koma til Ischia
Flogið með Icelandair frá Keflavík til Rómar. Rúta bíður okkar á flugvellinum og ekur okkur til Pozzuoli (ca. 3 klst) þar sem við tökum ferju yfir til Ischia, u.þ.b. klukkutíma sigling. Rútuferð frá höfninni á Ischia að Park Hotel Carlo Magno, í bænum Forio þar sem fer fram úthlutun herbergja og síðan kvöldmatur.
Dagur-2
Slökun og kvöldverður á A´Paranza Sea Restaurant
Við byrjum þennan dag í rólegheitum með morgunverð á hótelinu og síðar verðaa farþegar boðnir velkomnir af íslenskum gestgjafa sem búsett er á Ischia. Fordrykkur í boði á meðan farið er yfir dagskrá ferðarinnar ásamt fleiri atriðum sem gott er að vita. Eftir það er frjáls tími þar til síðdegis þegar við förum með rútu yfir til eins mest heillandi og elsta bæjar Ischia, Ischia Ponte sem hinn mikilfenglegi kastali Aragonese Castle gnæfir yfir og rammar inn umhverfið þar sem við borðum kvöldmat á veitingastaðnum A´Paranza Sea Restaurant og njótum hins fræga Biancolella víns sem er innlend framleiðsla.
Eftir matinn er hægt að rölta aðeins um bæinn eða njóta þess að sitja lengi og borða og drekka að ítölskum sið. Rúta heim á hótel að loknum kvöldverði.
Dagur-3
Epomeo (Monte Epomeo) ásamt matarupplifun og vínsmökkun.
Við hefjum daginn á góðum morgunmat og rúta sækir hópinn á hótelið. Ekið er til bæjarins Serrara Fontana, þar sem gengið er inn í þéttvaxinn skóg, Frassitelli, og upp að dásamlegu svæði þar sem hægt er að njóta stórfenglegs útsýnis yfir bæinn Forio sem þekktur er fyrir einstaka gróðursæld og ríki villtu kanínunnar. Við höldum göngunni áfram og niður til Falagna, gegnum skóg þar sem vaxa kastaníutré og þar getum við skoðað gömul steinhús sem einkenndu eyjuna áður fyrr. Áfram höldum við þar til að við komum á malarveg sem leiðir okkur að Pietra dell Acqua sem liggur upp á topp Epomeo fjalls, Punta San Nicola (789m). Þegar gengið er niður verður stoppað á einstökum veitingastað sem er einkennandi fyrir matarmenningu Ischia og hópnum er boðið upp á veitingar af heimagerðum mat sem skolað er niður með Biancolella víni. Eftir matinn tökum við stutta göngu niður brekku þar sem rútan bíður okkar og ekur heim á hótel. Kvöldmatur á hótelinu.
Erfiðleikastig: Miðlungs
Vegalengd: 6.8 km
Hæðarmunur: 420 m
Tímalengd: ca. 6 klst
Dagur-4
Dagur 4. Pelara Bay og Monte di Panza (ásamt matar/vínsmökkun).
Rútan sækir okkur að loknum morgunverði og fer með okkur til Panza þaðan sem við göngum upp eftir gömlum skógarstíg þar til við komumst á frábæran útsýnisstað yfir Pelaraflóa og sjáum vel lagskiptingu jarðlaganna sem mynduðust í gosum áður fyrr. Þegar við höfum notið útsýnisins göngum við niður brattar trétröppur sem byggðar eru inn í móbergið og á leiðinni förum við gegnum gróðursælt svæði með alls konar strandgróðri og villtum orkideum. Við tökum krók til Monte Panza þar sem við höfum frábært útsýni yfir til Capri og Sant‘Angelo og komum að hinu dásamlega Bay of Sorgeto. Við stoppum í gömlum vínkjallara þar sem við fáum að bragða á mat og drykk og njótum útsýnisins yfir flóann sem er frægur fyrir náttúruböð.
Að því loknu sækir rútan okkur og skutlar heim á hótel. Slökun og kvöldverður.
Erfiðleikastig: Auðvelt
Vegalengd: 4 km
Hæðarmunur: 150 m
Tímalengd: ca. 5 klst
Dagur-5
Morgunverður og frjáls dagur.
Í dag er frídagur og tilvalið að nota hann til að slaka á og njóta sundlaugarinnar og þess sem hótelið hefur upp á að bjóða. Einnig er mögulegt að skipuleggja ferðir til eyjanna í nágrenninu, Capri , Procida eða skreppa til Amalfi og Positano.
Þá er einnig hægt að njóta dagsins með heimsókn í Poseidon Garden, þar sem eru náttúruböð, sundlaugar og spa af ýmsum gerðum. Einnig er tilvalið að njóta dagsins í miðbænum eða á ströndinni svo fátt eitt sé nefnt.
Dagur-6
Dagur 6 Fumarole –Sant‘Angelo (ásamt matar/vínsmökkun).
Að loknum morgunverði sækir rútan okkur og ekur okkur til bæjarins Cava Grado sem er þekkt sjávarþorp og stórkostlegar strendur. Við hittum leiðsögumanninn okkar á Torginu í Cava Grado og og höldum áleiðis að Maronti-Fumarole ströndinni þar sem okkur verður boðið upp á kjúkling, kartöflur og egg sem eldað er í heitum sandinum. Frá Torginu í Cava Grado er stórkostlegt útsýni yfir di S‘Angelo. Við göngum eftir þröngum húsasundum þar sem við höfum útsýni yfir flóann og upp að kirkju San Michele Arcangelo verndardýrlingsins. Eftir stutt stopp höldum við ferðinni áfram þar sem Maronti ströndin og Fumarole mætast og við setjumst á ströndina og undirbúningur matreiðslunnar hefst. Matreiðslan tekur um klukkustund og á meðan getum við notið þess að liggja á ströndinni og fara í sjóinn (muna eftir sundfötum þennan dag). Eftir matinn og vínsmökkun verður okkur skutlað á „leigubílabátum“ til hafnarinnar í Sant‘Angelo þar sem rútan bíður okkar og fer með okkur heim á hótel.
Erfiðleikastig: Auðvelt
Vegalengd:4 km
Hæðarmunur: 150 m
Tímalengd: ca. 5 klst
Farangur: Sandalar, baðhandklæði og sundföt
Dagur-7
Bátsferð í kringum Ischia- við ljúkum skipulagðri ferð með einkasiglingu.
Við hefjum daginn á morgunverði á hótelinu áður en við verðum sótt og leggjum af stað í bátsferð umhverfis Ischia. Bátsferð í kringum Ischia er einstök upplifun og á leiðinni verður stoppað og býðst farþegum að baða sig í sjónum á ákveðnum stöðum. Léttur hádegisverður er í boði um borð, ásamt drykkjum og öðru meðlæti. Síðdegis kemur rúta og sækir hópinn þegar hann er kominn í land og ekur að hótelinu þar sem snæddur verður kvöldverður.
Dagur-8
Heimferð
Eftir morgunmat förum við með rútu niður að höfn og tökum ferjuna til Pozzuoli. Þar bíður okkar rúta sem ekur okkur á flugvöllinn í Róm fyrir heimflug til Keflavíkur. Áætluð brottför frá Róm er kl 16:00 og heimkoma kl 18:50
Upplýsingar
Innifalið
- Beint flug fram og til baka með Icelandair
- Flugvallargjöld og skattar ásamt ferðatösku og handfarangri
- Rútuferð til og frá flugvelli og bátsferð frá Pozzuoli á áfangastaðinn Ischia
- Standard hótelherbergi á 4 stjörnu hóteli – Park Hotel Carlo Magno
- Fordrykkur í boði hótelsins
- Hálft fæði (kvöld- og morgunmatur)
- Matarupplifun og smakk í þeim göngum sem við á
- Rúta til og frá hóteli í skoðunarferðir
- Íslensk fararstjórn og leiðsögn með innlendum leiðsögumanni
- Trygging (Centrale Operativa Ima Italia Assistance S.p.A. Opið allan sólarhringinn, læknisaðstoð)
- Glaðningur frá Áfram Flakk
Ekki innifalið
- Drykkir á meðan dvöl stendur
- Borgarskattur/þjórfé (Ef við á)
- Önnur persónuleg þjónusta á meðan dvöl stendur
Athugið:
Dagskrá getur verið beytileg vegna utanaðkomandi áhrifa t.d. veðurfar. Ekki er dregið úr fjölda né gæðum upplifunar. Breytingar á dagskrá innifela ekki í sér endurgreiðslu eða afslátt á ferð. Við bókun skal taka fram hverskonar fæðuóþol eða ofnæmi þannig að sem best sé hægt að koma til móts við þarfir allra gesta.
Bókanir
Til að bóka ferð er valin dagsetning efst undir “Skoða framboð og bóka” við viðkomandi ferð.
Verð fyrir tvíbýli 320.000 ISK fyrir tvo fullorðna á mann.
Verð fyrir einbýli 360.000 ISK.
Staðfestingargjald greiðist við bókun og er 35.000kr.
Skilmálar
Greiðslu upplýsingar
- Greiðsla fer fram um örugga greiðslugátt hjá Teya, kerfin eru samtengd og eru greiðslur skráðar sjálfkrafa inn á þína bókun.
- Staðfestingargjald á ferð eru 35.000 ISK per mann sem greiðist við bókun og er óafturkræft.
- Fullgreiða þarf ferð 85 dögum fyrir brottför, við sendum greiðslulink með vefpóst 85 dögum fyrir brottför.
Afbókanir
Ef afbókað er 6 vikum fyrir brottför, er pöntun felld niður. Ef afbókað er seinna eða ef ekki er mætt er engin endurgreiðsla.
Áfram Flakk áskilur sér rétt til að fella niður ferðir eða sameina ferðir ef lágmarksþátttaka næst ekki.