8 dagar/7 nætur
12. september – 19. september 2026
Fararstjóri: Guðný Sigurðardóttir og Fabio Como
Komdu með í glæsilega ferð þar sem við heimsækjum meðal annars Milano, Genova, Portofino og Monaco.
Upplifðu hreinan ítalskan sjarma, ríkulega sögu, framúrskarandi vín og töfrandi strandbæi.
Í þessari ferð fáum við að njóta lífsins með heimafólki, hitta fólk sem þekkir svæðið og kynnast ekta ítalskri menningu á afslappaðan og notalegan hátt. Við ferðumst með rútu milli staða og gefum okkur tíma til að upplifa það besta sem hver staður hefur upp á að bjóða.
Í Milano förum við inn í ys og þys stórborgarinnar, tískunnar, kaffihúsalífsins og stórbrotinna bygginga. Við heimsækjum Genova, Portofino og Monaco sem bjóða upp á rólegri stemningu, heillandi litríkar götur og suðrænt andrúmsloft.
Skoða framboð og bóka
Skoða framboð og bóka: 12. september – 19. september 2026 >>>
Dagur-1 – 12. september
Beint flug með Icelandair frá Keflavík til Malpensa. Brottför frá Keflavík kl 9:00 og lending í Milano kl. 15.10.
Rúta bíður okkar á flugvellinum og ekur okkur til Hotel Villa Pomela, Novi Ligure, þar sem gist verður í þrjár nætur. Koma til Villa Pomela er um kl. 18.00 og eftir innritun á hótelið og úthlutun herbergja er snæddur kvöldverður á hótelinu og njótum þess sem er þar í boði.
Dagur-2 – 13. september
Að loknum morgunverði, ætlum við að njóta hótelsins og nágrenni þess. Hægt er að njóta sundlaugarinnar eða fara í stutta göngu í nágrenninu. Eftir það verður ekið til Tagliolo Monferrato Castle. Fyrstu heimildir um Tagliolo kastalann eru frá mars árið 976. Árið 1750, eftir giftingu Teresu Gentile við Costantino Pinelli, féll Tagliolo-lénið til Pinelli Gentile fjölskyldunnar, með titlinum Markgreifinn af Tagliolo. Við hittum Luca núverandi markgreifa sem segir okkur sögu kastalans, fáum að sjá hvernig aðallinn lifir og förum í vínsmökkun í kjallara kastalans. Að heimsókn lokinni höldum við til Acqui Terme þar sem við heimsækjum gömlu böðin og fáum okkur smá göngu um gamla sögulega hluta bæjarins áður en við förum í kvöldmat að hætti heimamanna á veitingastaðnum “da Nonna Gina”.
Að loknum kvöldverði verður ekið til Hotel Villa Pomela til gistingar.
Dagur-3 – 14. september
Morgunmatur á hótelinu. Eftir morgunverð verður farið með rútu til Serravale Outlet, sem er stærsta Outlet í Evrópu. Við verjum góðum tíma í að skoða Outletið, þar eru tugir verslana með merkjavörur og ýmiskonar varning. Þar er einnig að finna fjölda veitingastaða og margt annað að sjá. Að heimsókn lokinni höldum við til Cascina Biné, Gavi Ligure þar sem við fáum að kynnast uppskerustörfum og matreiðslu, vínsmökkun og endum á því að snæða kvöldverð á staðnum. Þvílík veisla. Áætlað er að snúa aftur til Villa Pomela um klukkan 21:00 þar sem við gistum síðustu nóttina áður en við flytjum okkur yfir til Genova.
Dagur-4 – 15. september
Morgunverður á hótelinu, síðan er haldið til Santa Margherita þaðan sem við tökum ferju til Portofino. Portofino er sveitarfélag staðsett í stórborginni Genova á ítölsku Rívíerunni. Bærinn er myndaður í kringum litla höfn og er þekktur fyrir litrík hús sem standa við strandlengjuna. Frá því seint á 19. öld hefur Portofino laðað til sín ferðamenn úr evrópskum aðalsstéttum og er nú áfangastaður fyrir heimsfræga elítu ferðamenn. Portofino er vinsæl til kvikmyndaframleiðslu, þar hafa margar frægar kvikmyndir verið teknar upp t.d. Dolce Vita sem leikstýrt var af Federico Fellini. Síðar hafa fjölmargar frægar kvikmyndastjörnur komið þar við sögu, t.d. Ingrid Bergman, Elisabeth Taylor, Humphrey Bogart, Lauren Bacall og Ava Gardner. Á undanförnum árum hafa persónur á borð við Bill Gates, Denzel Washington, Madonna og Barbra Streisand heimsótt Portofino. Árið 2013 var bærinn valinn fyrir nokkrar senur úr kvikmyndinni The Wolf of Wall Street eftir Martin Scorsese. Í Portofino má einnig finna styttu af Kristi í Djúpinu, staðsett neðansjávar, þar sem henni var komið fyrir 29. ágúst 1954 í flóanum á 17 metra dýpi. Höggmynd gerð af Guido Galletti, sem sýnir Krist horfa til himins með opnum örmum sem tákn um frið. Við njótum dagsins í Porto Fino þar til við tökum ferju og síðan rútu til baka til Genova á Hotel Continental.
Dagur-5 – 16. september
Morgunverður á hótelinu. Að því loknu er frjáls dagur í Genova, þar sem hægt er að ganga um gamla bæinn, skoða Dómkirkjuna, gömlu höfnina, stærsta sædýrasafn Evrópu, þar sem fjöldan allan af fiskitegundum er að finna, sem og skjaldbökur og mörgæsir. Möguleiki er á að geta keypt sér “baksviðspassa” og þannig heimsækja dýrin og taka þátt í fóðrun þeirra. Neptune (Svarta Perlan) skipslíkan af 17. aldar galeiðu sem hannað var af skipasmiðnum David Cannell liggur við gömlu höfnina. Skipið var smíðað árið 1985 fyrir kvikmynd Roman Polanski, Pirates. Gaman er að rölta um gamla bæinn, margir veitingastaðir og verslanir sem hægt er að líta inn í. Kvöldverður og gisting á Hotel Continental.
Dagur-6 – 17. september
Að loknum morgunverði er haldið til Monaco þar sem við munum verja deginum. Við heimsækjum gamla bæinn, Palis Princier, dómkirkjuna, gröf Grace Kelly. Litið við í hið fræga Casinó de Monte Carlo. Áður en haldið er frá bænum, heimsækjum við Larvotto, vinsælustu sandströndina á svæðinu þar sem við fáum okkur kokteil/prosecco áður en haldið er aftur til baka til Genova. Kvöldverður og síðasta gistinóttin í Genova. Áætlað er að það verði frjáls tími á hverjum stað og um að gera að hafa með sér sundföt fyrir þá sem vilja skella sér í sjóinn við Larvotto ströndina.
Dagur-7 – 18. september
Morgunverður á hótelinu og hópurinn heldur áleiðis til Milano. Við heimsækjum Sforza Castle sem er kastali frá miðöldum, staðsettur í Mílanó, norðurhluta Ítalíu. Hann var byggður á 15. öld af Francesco Sforza, hertoga Mílan, á rústum virkis frá 14. öld. Síðar var hann endurbyggður og stækkaður, á 16. og 17. öld var hún eitt stærsta virki Evrópu. Hann var endurbyggður að miklu leyti af Luca Beltrami á árunum 1891–1905, og hýsir nú nokkur söfn borgarinnar og listasöfn. Árás bandamanna á Mílanó árið 1943 í seinni heimsstyrjöldinni olli miklum skemmdum á kastalanum sem hefur verið gerður upp og lagfærður. Við höldum síðan áfram ferð okkar til Hotel Royal Stresa við Maggiore Lake þar sem við borðum kvöldmat og gistum síðustu nóttina.
Dagur-8 – 19. september
Morgunverður á hótelinu og frjáls tími þar til við leggjum af stað á flugvöllinn í Malpensa. Við áætlum að heimsækja eyjuna Isola Bella (valkvætt) sem er örskammt frá landi og eyða þar tíma þar til kemur að brottför frá hóteli um kl. 13.30.
Beint flug með Icelandair frá Malpensa til Keflavíkur. Brottför kl. 16.30 og áætluð lending í Keflavík kl. 23.35
Upplýsingar
Innifalið:
- Beint flug frá Keflavík til Malpensa
- Flugvallargjöld og skattar ásamt 20 kg ferðatösku og handfarangri
- 7 nætur á 4*hótelum með morgunverði alla daga.
- Kvöldmatur á hótelum, utan Genova, þau kvöld sem ekki er borðað á völdum veitingastöðum
- Vínsmökkun, matarupplifun auk aðgangseyris þar sem við á.
- Íslensk og ítölsk fararstjórn
- Rútuferðir til og frá flugvelli
- Allar rútu og bátsferðir (nema Isola Bella).
Ekki innifalið:
- Drykkir á meðan dvöl stendur
- Kvöldmatur í Genova
- Borgarskattur/þjórfé (Ef við á)
- Önnur persónuleg þjónusta á meðan dvöl stendur
- Þjórfé.
Athugið:
Dagskrá getur verið breytileg vegna utanaðkomandi áhrifa t.d. veðurfar. Ekki er dregið úr fjölda né gæðum upplifunar. Breytingar á dagskrá innifela ekki í sér endurgreiðslu eða afslátt á ferð. Við bókun skal taka fram hverskonar fæðuóþol eða ofnæmi þannig að sem best sé hægt að koma til móts við þarfir allra gesta.
Bókanir
Skoða framboð og bóka: 12. september – 19. september 2026 >>>
Verð á mann m.v tvo í herbergi: 450.000 ISK m.v tvo í herbergi
Verð fyrir einstaklingsherbergi: 480.000 ISK
Staðfestingargjald greiðist við bókun og er 70.000kr.
Skilmálar
Greiðslu upplýsingar
- Greiðsla fer fram um örugga greiðslugátt hjá Teya, kerfin eru samtengd og eru greiðslur skráðar sjálfkrafa inn á þína bókun.
- Staðfestingargjald á ferð eru 70.000 ISK per mann sem greiðist við bókun og er óafturkræft.
- Fullgreiða þarf ferð 85 dögum fyrir brottför, við sendum greiðslulink með vefpóst 85 dögum fyrir brottför.
Afbókanir
Ef afbókað er 6 vikum fyrir brottför, er pöntun felld niður. Ef afbókað er seinna eða ef ekki er mætt er engin endurgreiðsla.
Áfram Flakk áskilur sér rétt til að fella niður ferðir eða sameina ferðir ef lágmarksþátttaka næst ekki.
