8 dagar/7 nætur
7. – 14. október 2026
Fararstjórar: Erla Eiríks og Eva Dís. Nánar um farastjóra, smellið hér >>>
Komdu með í ferð þar sem við sameinum það besta úr hreyfingu, slökun og unaðslegri ítalskri matarmenningu. Ischia býður upp á heitar laugar, fallega náttúru, hreyfingu við allra hæfi, góðan mat, vín og skemmtilega samveru. Fullkomin blanda fyrir þá sem vilja hlaða batteríin – bæði líkamlega og andlega.
Ferðalýsing: Ævintýraeyjan Ischia, stærsta eyja Napólíflóa en líklega sú lítt þekktasta. Þessi draumaeyja býður upp á margskonar upplifun sem við hjá Áfram Flakk ætlum að færa ykkur í formi hreyfingar, matar- og vínsmökkunar, slökunar og alls þess besta sem þessi græna eyja hefur upp á að bjóða.
Á Ischia er að finna ósnortna náttúru, langar baðstrendur, náttúruböð, framúrskarandi vínrækt og matarupplifun sem allt er ræktað af heimamönnum. Eyjan er oft kölluð Græna eyjan og ekki af ástæðulausu þar sem hún er einstaklega gróskumikil og býður upp á stórfenglegt panorama útsýni í allar áttir. Ischia býr ennþá yfir sínum upprunalega sjarma þar sem hún er að mörgu leyti ennþá ósnortin, ólíkt Capri t.d. sem er gríðarlega vinsæll áfangastaður meðal ferðamanna. Verðlagið á Ischia er viðráðanlegt og töluvert ódýrara en gengur og gerist á öðrum ferðamannastöðum Amalfi strandarinnar.
Á ferð okkar um Ischia munum við upplifa helstu gimsteina eyjunnar ásamt að njóta alls hins besta í mat, drykk og hreyfingu. Þessi ferð er því sannarlega stórkostleg upplifun fyrir sál og líkama.
Skoða framboð og bóka
Skoða framboð og bóka: 7. – 14. október 2026 >>>
Dagur-1
Koma til Ischia
Flogið með Icelandair frá Keflavík til Rómar. Brottför 07:50 og áætluð lending kl 14:35. Rúta bíður okkar á flugvellinum og ekur okkur til Pozzuoli (ca. 3 klst) þar sem við tökum ferju yfir til Ischia, u.þ.b. klukkutíma sigling. Rútuferð frá höfninni til hótelsins Av Isola Verde Hotel & Thermal Spa þar sem fer fram úthlutun herbergja og síðan kvöldmatur.
Dagur-2
Skoðunarferð og Kvöldverður á A’ Paranza Sea Restaurant
Við byrjum þennan dag í rólegheitum með morgunverð á hótelinu og síðar verða farþegar boðnir velkomnir af íslenskum gestgjafa sem búsett er á Ischia. Fordrykkur í boði á meðan farið er yfir dagskrá ferðarinnar ásamt fleiri atriðum sem gott er að vita. Eftir það er frjáls tími þar sem gefst góður tími til að skoða bæinn, Ischia Ponte sem hinn mikilfenglegi kastali Aragonese gnæfir yfir. Við hittumst síðan um kl. 19.30 og borðum kvöldmat á A’ Paranza Sea Restaurant, veitingastað þar sem við fáum að njóta í mat og drykk af einkennisréttum eyjunnar. Eftir matinn er hægt að rölta aðeins um bæinn eða njóta þess að sitja lengi og borða og drekka að ítölskum sið þar til haldið er heim á hótel.
Dagur-3
Ganga upp á Monte Epomeo & Eldað að ítölskum hætti á La Porta Di Agartha
Við hefjum daginn á góðum morgunmat og rúta sækir hópinn á hótelið. Ekið er til bæjarins Serrara Fontana, þar sem gengið er inn í þéttvaxinn skóg, Frassitelli, og upp að dásamlegu svæði þar sem hægt er að njóta stórfenglegs útsýnis yfir bæinn Forio sem þekktur er fyrir einstaka gróðursæld og ríki villtu kanínunnar. Við höldum göngunni áfram og niður til Falagna, gegnum skóg þar sem vaxa kastaníutré. Áfram höldum við þar til að við komum á malarveg sem leiðir okkur að Pietra dell Acqua sem liggur upp á topp Epomeo fjalls, Punta San Nicola (789m). Þegar gengið er niður verður stoppað á einstökum veitingastað, La Porta di Agartha sem er einkennandi fyrir matarmenningu Ischia. Við kynnumst ítölskum matargerðarhefðum enn betur og tökum þátt í matreiðslu og að því loknu gæðum við okkur á kræsingunum sem bornar verða fram með heimaræktuðu víni. Hér kynnumst við listinni að útbúa ferskt pasta, hefðbundinn Ischia-rétt og hvernig best er að para saman lykt og bragð til að skapa einstaka rétti. Síðdegis, um kl. 17:00, verður farið aftur á hótelið.
Erfiðleikastig: Miðlungs
Vegalengd: 6.8 km
Hæðarmunur: 420 m
Tímalengd: ca. 6 klst
Dagur-4
Æfing með Evu og Erlu og matar og vínupplifun á Cantina U’ Scilatur
Byrjum daginn á góðum morgunmat og skellum okkur svo í æfingar á útisvæði nálægt hótelinu – Pineta. Eftir góða æfingu höldum við af stað með rútu upp í græna og friðsæla sveit Barano, þar sem við heimsækjum ekta Ischitana víngerð og veitingastað, Cantina U’ Scilatur. Staðurinn er falinn meðal vínviða við rætur Epomeofjallsins og gefur innsýn í hefðbundið líf og matarmenningu eyjarinnar. Hér er allt unnið af alúð. Hráefnið kemur að stórum hluta úr eigin ræktun og vínið er framleitt á staðnum. Við setjumst saman og njótum heimagerðs matar, góðs víns og hlýlegrar stemningar í einstöku umhverfi þar sem tíminn virðist hægja á sér. Kvöldstundin býður upp á notalega samveru, hlátur og ósvikna upplifun af lífinu á Ischia.
Dagur-5
Allir um borð í Rocca Corsa snekkjuna – Light lunch og léttvín
Við fáum okkur morgunverð á hótelinu og hendum okkur í léttar æfingar og svo gerum við okkur klár í siglingu. Siglt verður með Rocca Corsa og eyjan skoðuð utan af sjó. Nægur tími gefst til að stökkva í sjóinn og busla og leika sér. Um borð verður boðið upp á Biancolella vín beint frá býli og léttan hádegisverð. Það er fátt betra en að taka sundsprett og njóta lífsins í Miðjarðahafinu. Seinnipart dags endum við höfninni í Forio en þar verjum við restinni af deginum og fram á kvöld. Enda mikið líf og fjör í bænum þar og gaman að skoða sig um.
Dagur-6
POSEIDON THERMAL GARDENS
Eins og áður hefjum við daginn á góðum morgunverð og rúta sækir hópinn. Í dag verður sannkallaður lúxus dagur sem einkennist af góðri æfingu á Chitarara ströndinni sem er staðsett við Poseidon sundlaugagarðinn. Í Poseidon kemur lókal fólkið til slaka á og njóta sín. Garðurinn er með yfir 20 böð og gufur og hægt er að njóta í mat og drykk og rölta yfir á ströndina eða ganga um garðinn en hann er einstaklega stór og fallegur. Í lok dags endum við á hótelinu endurnærð eftir góðan dag.
Dagur-7
NITRODI SPRINGS
Eftir að hafa snætt góðan morgunverð höldum við af stað yfir til Barano sem hefur að geyma ævafornt lækningaspa frá tímum Rómverja. Fonte di Nitrodi er þekkt á eyjunni og sagt er að vatnið þar búi yfir miklum lækningarmætti og eru eyjaskeggjar duglegir að heimsækja það og láta líða úr sér. Í Nitrodi ætlar Erla að leiða yoga og eftir tímann þar gefst tími til að nýta sturturnar og alla aðstöðuna. Einnig er hægt að kaupa sér mat og drykk ef hungrið bankar á dyrnar eftir alla slökunina. Ath. Hægt er að bóka tíma í nudd í Nitrodi Springs fyrirfram.
Dagur-8
Heimferð
Eftir morgunmat förum við með rútu niður að höfn og tökum ferjuna til Pozzuoli. Þar bíður okkar rúta sem ekur okkur á flugvöllinn í Róm fyrir heimflug til Keflavíkur. Áætluð brottför frá Róm er kl 15:45 og heimkoma kl 18:40.
Upplýsingar
Innifalið
- Beint flug fram og til baka með Icelandair
- Flugvallargjöld og skattar ásamt 23 kg ferðatösku og 10 kg handfarangri
- Rútuferð til og frá flugvelli og bátsferð frá Pozzuoli á áfangastaðinn Ischia
- Standard hótelherbergi á 4 stjörnu hóteli – Av Isola Verde Hotel Thermal Spa
- Fordrykkur í boði hótelsins og kynning á ferðinni
- Morgunmatur alla daga og kvöldverður fyrsta kvöldið
- Matarupplifun og drykkir alla daga (nema á degi 6 og 7).
- Rúta til og frá hóteli í ferðir
- Íslensk fararstjórn og leiðsögn með innlendum leiðsögumanni þegar við á
- Trygging (Centrale Operativa Ima Italia Assistance S.p.A. Opið allan sólarhringinn, læknisaðstoð)
- Glaðningur frá Áfram Flakk
Ekki innifalið
- Drykkir á meðan dvöl stendur
- Borgarskattur/þjórfé (Ef við á)
- Önnur persónuleg þjónusta á meðan dvöl stendur
Athugið:
Dagskrá getur verið beytileg vegna utanaðkomandi áhrifa t.d. veðurfar. Ekki er dregið úr fjölda né gæðum upplifunar. Breytingar á dagskrá innifela ekki í sér endurgreiðslu eða afslátt á ferð. Við bókun skal taka fram hverskonar fæðuóþol eða ofnæmi þannig að sem best sé hægt að koma til móts við þarfir allra gesta.
Bókanir
Skoða framboð og bóka: 7. – 14. október 2026 >>>
Verð fyrir tvíbýli 350.000 fyrir tvo fullorðna á mann.
Ef óskað er eftir einbýli hafið sambandi við info@aframflakk.is
Staðfestingargjald greiðist við bókun og er 70.000kr.
Skilmálar
Greiðslu upplýsingar
- Greiðsla fer fram um örugga greiðslugátt hjá Teya, kerfin eru samtengd og eru greiðslur skráðar sjálfkrafa inn á þína bókun.
- Staðfestingargjald á ferð eru 70.000 ISK per mann sem greiðist við bókun og er óafturkræft.
- Fullgreiða þarf ferð 85 dögum fyrir brottför, við sendum greiðslulink með vefpóst 85 dögum fyrir brottför.
Afbókanir
Ef afbókað er 6 vikum fyrir brottför, er pöntun felld niður. Ef afbókað er seinna eða ef ekki er mætt er engin endurgreiðsla.
Áfram Flakk áskilur sér rétt til að fella niður ferðir eða sameina ferðir ef lágmarksþátttaka næst ekki.
