Facebook
Gönguferðir - Menningarferðir - Siglingar

Erla og Eva fundu hvor aðra fyrir 12 árum síðan! Það var pínku eins og þær hafi átt að hittast því þeim er ansi oft líkt saman og hefur verið ruglast á þeim oftar en einu sinni.

Það er aldrei dauð stund þegar þær koma saman, bàðar vel háværar og umfram allt klárlega hressustu manneskjurnar á staðnum! Þær eru báðar hóptímakennarar í World Class og hafa verið það síðastliðin tæp 7 ár. Þær kenna í sitthvoru lagi pakkfulla hóptima í hverri viku enda nokkuð vinsælar. Báðar eru þær með bullandi ADHD sem gerir dagana þeirra eiginlega eins og óvissuferð.

Að fara með þeim í ferð er ávísun á hlátur, stuð og stemmningu. Þær eru reyndar duglegar að stunda mikla líkamsrækt og mjög duglegar að finna tilefni til að fácér enda er ekkert í lífinu sem bannar að hafa gaman!