Gönguferðir - Menningarferðir - Siglingar

Sumarauki á Ischia

20 – 28 september 2026
Intro
20 – 28 september 2026

9 dagar/8 nætur
20. – 28. september 2026
Fararstjóri: Guðný Sigurðardóttir / Sigurbjörg Magnúsdóttir

Ferðalýsing: Ævintýraeyjan Ischia, stærsta eyja Napólíflóa en líklega sú lítt þekktasta. Þessi draumaeyja býður upp á margskonar upplifun sem við hjá Áfram Flakk ætlum að færa ykkur í formi hreyfingar, matar- og vínsmökkunar, slökunar og alls þess besta sem þessi græna eyja hefur upp á að bjóða.

Á Ischia er að finna ósnortna náttúru, langar baðstrendur, náttúruböð, framúrskarandi vínrækt og matarupplifun sem allt er ræktað af heimamönnum. Eyjan er oft kölluð Græna eyjan og ekki af ástæðulausu þar sem hún er einstaklega gróskumikil og býður upp á stórfenglegt panorama útsýni í allar áttir. Ischia býr ennþá yfir sínum upprunalega sjarma þar sem hún er að mörgu leyti ennþá ósnortin, ólíkt Capri t.d. sem er gríðarlega vinsæll áfangastaður meðal ferðamanna. Verðlagið á Ischia er viðráðanlegt og töluvert ódýrara en gengur og gerist á öðrum ferðamannastöðum Amalfi strandarinnar.

Á ferð okkar um Ischia munum við upplifa helstu gimsteina eyjunnar ásamt að njóta alls hins besta í mat og drykk. Þessi ferð er því sannarlega stórkostleg upplifun fyrir sál og líkama.

Skoða framboð og bóka

Skoða framboð og bóka: 20 – 28. September 2026 >>>

Dagur-1

Koma til Ischia

Flogið með Icelandair frá Keflavík til Rómar. Rúta bíður okkar á flugvellinum og ekur okkur til Pozzuoli (ca. 3 klst) þar sem við tökum ferju yfir til Ischia, u.þ.b. klukkutíma sigling. Rútuferð frá höfninni til hótelsins Av Isola Verde Hotel & Thermal Spa þar sem fer fram úthlutun herbergja og síðan kvöldmatur.

Dagur-2

Slökun og kvöldverður á “local” veitingastað

Við byrjum þennan dag í rólegheitum með morgunverð á hótelinu og síðar verða farþegar boðnir velkomnir af íslenskum gestgjafa sem búsett er á Ischia. Fordrykkur í boði á meðan farið er yfir dagskrá ferðarinnar ásamt fleiri atriðum sem gott er að vita. Eftir það er frjáls tími þar sem gefst góður tími til að skoða bæinn, Ischia Ponte sem hinn mikilfenglegi kastali Aragonese Castle gnæfir yfir. Við hittumst síðan um kl. 19.30 og borðum kvöldmat á local veitingastað þar sem við fáum að njóta í mat og drykk af einkennisréttum eyjunnar.

Eftir matinn er hægt að rölta aðeins um bæinn eða njóta þess að sitja lengi og borða og drekka að ítölskum sið þar til haldið er heim á hótel.

Dagur-3

Epomeo (Monte Epomeo) ásamt matarupplifun og vínsmökkun.

Við hefjum daginn á góðum morgunmat og rúta sækir hópinn á hótelið. Ekið er til bæjarins Serrara Fontana, þar sem gengið er inn í þéttvaxinn skóg, Frassitelli, og upp að dásamlegu svæði þar sem hægt er að njóta stórfenglegs útsýnis yfir bæinn Forio sem þekktur er fyrir einstaka gróðursæld og ríki villtu kanínunnar. Við höldum göngunni áfram og niður til Falagna, gegnum skóg þar sem vaxa kastaníutré og þar getum við skoðað gömul steinhús sem einkenndu eyjuna áður fyrr. Áfram höldum við þar til að við komum á malarveg sem leiðir okkur að Pietra dell Acqua sem liggur upp á topp Epomeo fjalls, Punta San Nicola (789m). Þegar
gengið er niður verður stoppað á einstökum veitingastað sem er einkennandi fyrir matarmenningu Ischia og hópnum er boðið upp á veitingar af heimagerðum mat sem skolað er niður með Biancolella víni. Eftir matinn tökum við stutta göngu niður brekku þar sem rútan bíður okkar og ekur heim á hótel.

Erfiðleikastig: Miðlungs
Vegalengd: 6.8 km
Hæðarmunur: 420 m
Tímalengd: ca. 6 klst

Dagur-4

PELARA BAY AND MONTE DI PANZA ) ásamt matarupplifun og vínsmökkun. Morgunverður á hótelinu og akstur til Panza. Gengið er í gegnum þéttan og gróðusælan skóg þangað til komið er upp á topp Pelara höfðans. Þar njótum við einstaks útsýnis áður en við höldum til baka.
Á leiðinni til baka er farið fram hjá Monte di Panza, þaðan sem hægt er að njóta stórkostlegs útsýnis yfir Capri og Sant’Angelo, og komið að töfrandi Sorgeto-flóanum. Léttur hádegisverður í gömlum vínkjallara með einstöku útsýni yfir flóann, sem er frægur fyrir heitar náttúrulaugar.

Rúta sækir hópinn og ekur aftur á hótel.

Erfiðleikastig: Auðvelt
Vegalengd: 4 km
Hæðarmunur: 150 m
Tímalengd: ca. 5 klst

Dagur-5

Morgunverður og frjáls dagur – kvöldverður á A’Paranza

Í dag er frídagur og tilvalið að nota hann til að slaka á og njóta sundlaugarinnar og þess sem hótelið hefur upp á að bjóða. Einnig er æ mögulegt að skipuleggja ferðir til eyjanna í nágrenninu, Capri , Procida eða skreppa til Amalfi og Positano.
Þá er einnig hægt að njóta dagsins með heimsókn í Poseidon Garden, þar sem eru náttúruböð, sundlaugar og spa af ýmsum gerðum. Einnig er tilvalið að njóta dagsins í miðbænum eða á ströndinni svo fátt eitt sé nefnt. Um kvöldið höldum við til Ischia Ponte, aðeins 5 mínútna göngufjarlægð frá hótelinu, þar sem hinn fræðgi Aragonese-kastali blasir við okkur á meðan við njótum í mat og drykk á A’Paranza Raustaurant.

Dagur-6

Á slóðum Biancolella ásamt matarupplifun og vínsmökku

Við byrjum daginn á ljúffengum morgunverði áður en rútan sækir hópinn og ekur honum upp að þorpinu Campagnano. Þaðan liggur leið okkar til yfirgefna þorpsins Piano Liguori og á leiðinni blasir við fallegt útsýni yfir Napólíflóa. Á leiðinni munum við ganga meðfram matjurtagörðum og vínekrum sem kúra í hlíðunum hátt yfir sjávarmáli og þar gefur að líta stórkostlegt útsýni yfir Sgarrupata flóann. Við höldum svo göngunni áfram eftir gamalli gönguleið gegnum móberg og gömul goslög. Þegar komið er á áfangastað bíður okkar verðskulduð slökun ásamt því að smakka á mat og víni sem ræktað er af heimamönnum. Að því loknu hefjum við gönguna heim, gengið er niður bratta brekku sem er ein af elstu götum eyjunnar en þar bíður rútan eftir okkur og ekur okkur til baka á hótelið.

Erfiðleikastig: Miðlungs/Erfitt
Vegalengd: 5 km
Hæðarmunur: 300 m
Tímalengd: ca. 6 klst

Dagur-7

Eldað að ítölskum hætti

Eftir morgunmat sækir rútan okkur og ekur til Monte Epomeo. Í dag ætlum við að læra meira um ítalska matargerð. Matreiðslunámskeið sem lýkur með hádegisverði og vínsmökkun. Kokkurinn á veitingastaðnum La porta di Agartha ætlar að kenna okkur að útbúa ferskt pasta og þjóðarrétt Ischia „Rabbit al‘ Ischitana“ og hvernig má töfra fram einstaka rétti úr heimaræktuðum hráefnum. Þetta er veisla sem lætur bragðlaukana dansa! Seinnipartinn sækir rútan okkur og ekur heim á hótel.

Dagur-8

Morgunverður og frjáls dagur.

Í dag er frídagur og tilvalið að nota hann til að slaka á og njóta sundlaugarinnar og þess sem hótelið hefur upp á að bjóða. Einnig er mögulegt að skipuleggja ferðir til eyjanna í nágrenninu, Capri , Procida eða skreppa til Amalfi og Positano. Þá er einnig hægt að njóta dagsins með heimsókn í Poseidon Garden, þar sem eru náttúruböð, sundlaugar og spa af ýmsum gerðum. Einnig er tilvalið að njóta dagsins í miðbænum eða á ströndinni svo fátt eitt sé nefnt.

Dagur-9

Heimferð

Eftir morgunmat förum við með rútu niður að höfn og tökum ferjuna til Pozzuoli. Þar bíður okkar rúta sem ekur okkur á flugvöllinn í Róm fyrir heimflug til Keflavíkur. Áætluð brottför frá Róm er kl 15:25 og heimkoma kl 18:15.

Upplýsingar

Innifalið

  • Beint flug fram og til baka með Icelandair
  • Flugvallargjöld og skattar ásamt 23 kg ferðatösku og 10 kg handfarangri
  • Rútuferð til og frá flugvelli og bátsferð frá Pozzuoli á áfangastaðinn Ischia
  • Standard hótelherbergi á 4 stjörnu hóteli – Av Isola Verde Hotel Thermal Spa
  • Fordrykkur í boði hótelsins
  • Morgunmatur alla daga og 3x kvöldverður
  • Matarupplifun og smakk í þeim göngum sem við á
  • Hádegisverður í þeim göngum sem við á
  • Rúta til og frá hóteli í skoðunarferðir
  • Íslensk fararstjórn og leiðsögn með innlendum leiðsögumanni
  • Trygging (Centrale Operativa Ima Italia Assistance S.p.A. Opið allan
  • sólarhringinn,
  • læknisaðstoð)
  • Glaðningur frá Áfram Flakk

Ekki innifalið

  • Drykkir á meðan dvöl stendur
  • Borgarskattur/þjórfé (Ef við á)
  • Önnur persónuleg þjónusta á meðan dvöl stendur

Athugið:
Dagskrá getur verið breytileg vegna utanaðkomandi áhrifa t.d. veðurfar. Ekki er dregið úr fjölda né gæðum upplifunar. Breytingar á dagskrá innifela ekki í sér endurgreiðslu eða afslátt á ferð. Við bókun skal taka fram hverskonar fæðuóþol eða ofnæmi þannig að sem best sé hægt að koma til móts við þarfir allra gesta.

Bókanir

Skoða framboð og bóka: 20 – 28. September 2026 >>>

Verð fyrir tvíbýli 429.900 ISK fyrir tvo fullorðna á mann.
Verð fyrir einbýli 469.900 ISK.
Staðfestingargjald greiðist við bókun og er 70.000kr.

Skilmálar

Greiðslu upplýsingar

  • Greiðsla fer fram um örugga greiðslugátt hjá Teya, kerfin eru samtengd og eru greiðslur skráðar sjálfkrafa inn á þína bókun.
  • Staðfestingargjald á ferð eru 70.000 ISK per mann sem greiðist við bókun og er óafturkræft.
  • Fullgreiða þarf ferð 85 dögum fyrir brottför, við sendum greiðslulink með vefpóst 85 dögum fyrir brottför.

Afbókanir

Ef afbókað er 6 vikum fyrir brottför, er pöntun felld niður. Ef afbókað er seinna eða ef ekki er mætt er engin endurgreiðsla.

Áfram Flakk áskilur sér rétt til að fella niður ferðir eða sameina ferðir ef lágmarksþátttaka næst ekki.

Myndir