Gönguferðir - Menningarferðir - Siglingar

Bella Ischia – Bland af því besta

27 maí – 7 júní 2026
Intro
27 maí – 7 júní 2026

12 dagar/11 nætur
27.  maí – 7. júní 2026
Fararstjóri Guðný Sigurðardóttir

Ferðalýsing: Ævintýraeyjan Ischia, stærsta eyja Napólíflóa en líklega sú lítt þekktasta. Þessi draumaeyja býður upp á margskonar upplifun sem við hjá Áfram Flakk ætlum að færa ykkur í formi hreyfingar, matar- og vínsmökkunar, slökunar og alls þess besta sem þessi græna eyja hefur upp á að bjóða.

Á Ischia er að finna ósnortna náttúru, langar baðstrendur, náttúruböð, framúrskarandi vínrækt og matarupplifun sem allt er ræktað af heimamönnum. Eyjan er oft kölluð Græna eyjan og ekki af ástæðulausu þar sem hún er einstaklega gróskumikil og býður upp á stórfenglegt panorama útsýni í allar áttir. Ischia býr ennþá yfir sínum upprunalega sjarma þar sem hún er að mörgu leyti ennþá ósnortin, ólíkt Capri t.d. sem er gríðarlega vinsæll áfangastaður meðal ferðamanna. Verðlagið á Ischia er viðráðanlegt og töluvert ódýrara en gengur og gerist á öðrum ferðamannastöðum Amalfi strandarinnar.

Á ferð okkar um Ischia munum við upplifa helstu gimsteina eyjunnar ásamt að njóta alls hins besta í mat og drykk. Þessi ferð er því sannarlega stórkostleg upplifun fyrir sál og líkama.

Skoða framboð og bóka

Skoða framboð og bóka: 27. maí – 7. júní 2026 >>>

Dagur-1

Koma til Ischia

Beint flug með Icelandair frá Keflavík til Rómar, brottför kl 7:50, og áætluð lending kl 14:25. Rúta bíður okkar á flugvellinum í Róm og ekur okkur til Pozzuoli (ca. 3 klst) þar sem við tökum ferju yfir til Ischia, u.þ.b. klukkutíma sigling. Rútuferð frá höfninni til hótelsins Av Isola Verde Hotel & Thermal Spa þar sem fer fram úthlutun herbergja og síðan kvöldmatur.

Dagur-2

Slökun og kvöldverður á Alberto Beach Club & Restaurant

Við byrjum þennan dag í rólegheitum með morgunverði á hótelinu og síðar verða farþegar boðnir velkomnir af íslenskum gestgjafa sem búsett er á Ischia. Boðið er upp á drykk meðan farið er yfir dagskrá ferðarinnar ásamt fleiri atriðum sem gott er að vita. Eftir það er frjáls tími þar til síðdegis en þá verðum við gestir á Alberto Beach Club & Restaurant sem rekinn er af íslenska gestgjafanum okkar á Ischia. Hér fáum við að bragða á hefðbundnum local réttum og víni.
Eftir matinn er hægt að rölta aðeins um bæinn eða njóta þess að sitja lengi og borða og drekka að ítölskum sið og rölta svo heim á hótel – ca 900 m.

Dagur-3

Monte Epomeo ásamt matarupplifun og vínsmökkun.

Við hefjum daginn á góðum morgunmat og rúta sækir hópinn á hótelið. Ekið er til bæjarins Serrara Fontana, þar sem gengið er inn í þéttvaxinn skóg, Frassitelli, og upp að dásamlegu svæði þar sem hægt er að njóta stórfenglegs útsýnis yfir bæinn Forio sem þekktur er fyrir einstaka gróðursæld og ríki villtu kanínunnar. Við höldum göngunni áfram og niður til Falagna, gegnum skóg þar sem vaxa kastaníutré og þar má sjá gömul steinhús sem einkenndu eyjuna áður fyrr. Áfram höldum við þar til að við komum á malarveg sem leiðir okkur að Pietra dell Acqua sem liggur upp á topp Epomeo fjalls, Punta San Nicola (789m). Þegar gengið er niður verður stoppað á einstökum veitingastað sem er einkennandi fyrir matarmenningu Ischia og hópnum er boðið upp á veitingar af heimagerðum mat sem skolað er niður með Biancolella víni. Eftir matinn tökum við stutta göngu þangað sem rútan bíður okkar og ekur heim á hótel. Kvöldmatur á hótelinu.

Erfiðleikastig: Miðlungs
Vegalengd: 6.8 km
Hæðarmunur: 420 m
Tímalengd: ca. 6 klst

Dagur-4

Cannavale

Eftir morgunverð erum við sótt og ekið til bæjarins Fiaiano þaðan sem við göngum eftir einum af elstu göngustígum Ischia, búnir til af bændum sem þurftu að komast til og frá ræktunarlöndum sínum og safna vatni. Leiðin liggur gegnum skóga og vínræktarlönd þar til við göngum upp steintröppur sem liggja að hinu kyrrláta San Paolo Plan. Við höldum áfram að býli þar sem ýmiskonar ræktun fer fram og fáum hádegisverð í þeirra boði, allt úr eigin ræktun og framleiðslu, bæði matur og vín. Að loknum hádegisverði göngum við áfram þangað sem rútan sækir okkur og ekur heim á hótel. Kvöldverður á hótelinu.

Erfiðleikastig: Miðlungs
Vegalengd: 6 km
Hæðarmunur: 200 m
Tímalengd: ca. 4-5 klst

Dagur-5

Morgunverður og frjáls dagur

Í dag er frídagur og tilvalið að nota hann til að slaka á og njóta sundlaugarinnar og þess sem hótelið hefur upp á að bjóða. Einnig er mögulegt að skipuleggja ferðir til Sorrento, eða skreppa til Amalfi og Positano í dagsferð.
Þá er einnig hægt að njóta dagsins með heimsókn í Poseidon Garden, þar sem eru náttúruböð, sundlaugar og spa af ýmsum gerðum. Einnig er tilvalið að njóta dagsins í miðbænum eða á ströndinni svo fátt eitt sé nefnt. Við förum í kvöldverð á einum af fallegustu stöðunum á eyjunni, í gamla þorpinu Ischia Ponte þar sem Aragonese kastalinn gnæfir yfir, mælum sannarlega með að heimsækja hann einhvern tíma í ferðinni. Þar fáum við að njóta frábærrar local matreiðslu og Biancolella víns á Aparanza sea restaurant https://aparanzasearestaurant.it/

Dagur-6

Capri

Eftir morgunverð göngum við til hafnarinnar í Ischia þar sem við förum um borð í ferju til eyjunnar Capri sem flestir þekkja. Capri er annáluð fyrir fegurð og sögulega menningu. Í dag er Capri gríðarlega vinsæll ferðamannastaður og þekkt um allan heim. Meðal þekktustu staða á Capri eru garðar Augustusar, Faraglioni klettarnir og Via Krupp. Við ökum upp til Anacapri og þar gefst frjáls tími sem hægt er að nota til að fara með kláfnum upp á topp og annaðhvort hægt að njóta þess að fá sér mat og kaffi þar uppi eða niðri áður en haldið er aftur niður að höfninni þar sem við tökum ferjuna yfir til Ischia seinnipartinn.

Dagur-7

Á slóðum Biancolella ásamt matarupplifun og vínsmökkun

Við byrjum daginn á ljúffengum morgunverði áður en rútan sækir hópinn og ekur honum upp að þorpinu Campagnano. Þaðan liggur leið okkar til yfirgefna þorpsins Piano Liguori og á leiðinni blasir við fallegt útsýni yfir Napólíflóa. Á leiðinni munum við ganga meðfram matjurtagörðum og vínekrum sem kúra í hlíðunum hátt yfir sjávarmáli og þar gefur að líta stórkostlegt útsýni yfir Sgarrupata flóann. Við höldum svo göngunni áfram eftir gamalli gönguleið gegnum móberg og gömul goslög. Þegar komið er á áfangastað bíður okkar verðskulduð slökun ásamt því að smakka á mat og víni sem ræktað er af heimamönnum. Að því loknu hefjum við gönguna heim, gengið er niður bratta brekku sem er ein af elstu götum eyjunnar en þar bíður rútan eftir okkur og ekur okkur til baka á hótelið þar sem við snæðum kvöldmat og eigum skemmtilega stund.

Erfiðleikastig: Miðlungs/Erfitt
Vegalengd: 5 km
Hæðarmunur: 300 m
Tímalengd: ca. 6 klst

Dagur-8

Morgunverður og frjáls dagur

Í dag er frídagur og tilvalið að nota hann til að slaka á og njóta sundlaugarinnar og þess sem hótelið hefur upp á að bjóða. Einnig er mögulegt að skipuleggja ferðir til Sorrento, eða skreppa til Amalfi og Positano í dagsferð.
Þá er einnig hægt að njóta dagsins með heimsókn í Poseidon Garden, þar sem eru náttúruböð, sundlaugar og spa af ýmsum gerðum. Einnig er tilvalið að njóta dagsins í miðbænum eða á ströndinni svo fátt eitt sé nefnt.

Dagur-9

Procida – Hálfur dagur

Að loknum morgunmat gefst góður tími til að njóta sólar og sundlaugar áður en við verðum sótt til að fara með ferju til eyjarinnar Procida, sem var titluð „höfuðborg Ítalskrar menningar árið 2022“. Procida er minnsta eyjan í Campania eyjaklasanum. Ekið verður um eyjuna á litlum taxa og gert verður útsýnis stopp í Marina di Chiaiolella og einnig í Punta Pizzaco. Við ætlum að heimsækja sögulega klaustrið Abbey of San Michele Arcangelo þar sem boðið er upp á túr með leiðsögn. ATH. Þar er hins vegar mjög takmarkaður aðgangur svo ekki er öruggt að við getum komist í leiðsagða ferð um staðinn. Við göngum um sögufræga þorpið og stoppum við The Belvedere dei Cannoni þar sem við njótum dásamlegs útsýnis. Síðan getum við kitlað bragðlaukana með hinni rómuðu „Lingue di Procida“ sem er góðgæti, upprunnið á Procida. Að lokum höfum við frjálsan tíma til að skoða okkur um í Marina Grande og Borgo Sent‘Co áður en við höldum til hafnarinnar og tökum ferju heim til Ischia. Rútan bíður við höfnina og ekur okkur á hótelið fyrir kvöldmat.

Dagur-10

Eldað að ítölskum hætti

Eftir morgunmat sækir rútan okkur og ekur til Monte Epomeo. Í dag ætlum við að læra meira um ítalska matargerð. Matreiðslunámskeið sem lýkur með hádegisverði og vínsmökkun. Kokkurinn á veitingastaðnum La porta di Agartha ætlar að kenna okkur að útbúa ferskt pasta og þjóðarrétt Ischia „Rabbit al‘ Ischitana“ og hvernig má töfra fram einstaka rétti úr heimaræktuðum hráefnum. Þetta er veisla sem lætur bragðlaukana dansa! Seinnipartinn sækir rútan okkur og ekur heim á hótel. Kvöldverður og slökun.

Dagur-11

Morgunverður og frjáls dagur

Í dag er frídagur og tilvalið að nota hann til að slaka á og njóta sundlaugarinnar og þess sem hótelið hefur upp á að bjóða. Einnig er mögulegt að skipuleggja ferðir til eyjanna í nágrenninu, Capri , Procida eða skreppa til Amalfi og Positano.
Þá er einnig hægt að njóta dagsins með heimsókn í Poseidon Garden, þar sem eru náttúruböð, sundlaugar og spa af ýmsum gerðum. Einnig er tilvalið að njóta dagsins í miðbænum eða á ströndinni svo fátt eitt sé nefnt.

Dagur-12

Heimferð

Eftir morgunmat förum við með rútu niður að höfn og tökum ferjuna til Pozzuoli. Þar bíður okkar rúta sem ekur okkur á flugvöllinn í Róm fyrir heimflug til Keflavíkur. Áætluð brottför frá Róm er kl 15:25 og heimkoma kl 18:15.

Upplýsingar

Innifalið

  • Beint flug fram og til baka með Icelandair
  • Flugvallargjöld og skattar ásamt 23 kg ferðatösku og 10 kg handfarangri
  • Rútuferð til og frá flugvelli og bátsferð frá Pozzuoli á áfangastaðinn Ischia
  • Standard hótelherbergi á 4 stjörnu hóteli – Av Isola Verde Hotel Thermal Spa
  • Fordrykkur í boði hótelsins
  • Morgunmatur alla daga á hótelinu + kvöldverður á komudegi
  • Hádegisverður 4* í skipulögðum ferðum
  • Kvöldverður 2* á Alberto & A‘paranza restaurant
  • Rúta til og frá hóteli í skoðunarferðir
  • Íslensk fararstjórn og leiðsögn með innlendum leiðsögumanni
  • Trygging (Centrale Operativa Ima Italia Assistance S.p.A. Opið allan sólarhringinn, læknisaðstoð)
  • Glaðningur frá Áfram Flakk

Ekki innifalið

  • Drykkir á meðan dvöl stendur
  • Borgarskattur/þjórfé (Ef við á)
  • Önnur persónuleg þjónusta á meðan dvöl stendur

Athugið:
Dagskrá getur verið breytileg vegna utanaðkomandi áhrifa t.d. veðurfar. Ekki er dregið úr fjölda né gæðum upplifunar. Breytingar á dagskrá innifela ekki í sér endurgreiðslu eða afslátt á ferð. Við bókun skal taka fram hverskonar fæðuóþol eða ofnæmi þannig að sem best sé hægt að koma til móts við þarfir allra gesta.

Bókanir

Skoða framboð og bóka: 27. maí – 7 júní 2026 >>>

Verð fyrir tvíbýli 469.000 ISK fyrir tvo fullorðna á mann.
Verð fyrir einbýli 499.000 ISK.
Staðfestingargjald greiðist við bókun og er 70.000kr.

Skilmálar

Greiðslu upplýsingar

  • Greiðsla fer fram um örugga greiðslugátt hjá Teya, kerfin eru samtengd og eru greiðslur skráðar sjálfkrafa inn á þína bókun.
  • Staðfestingargjald á ferð eru 70.000 ISK per mann sem greiðist við bókun og er óafturkræft.
  • Fullgreiða þarf ferð 85 dögum fyrir brottför, við sendum greiðslulink með vefpóst 85 dögum fyrir brottför.

Afbókanir

Ef afbókað er 6 vikum fyrir brottför, er pöntun felld niður. Ef afbókað er seinna eða ef ekki er mætt er engin endurgreiðsla.

Áfram Flakk áskilur sér rétt til að fella niður ferðir eða sameina ferðir ef lágmarksþátttaka næst ekki.

Myndir