Gönguferðir - Menningarferðir - Siglingar

Matur, menning og upplifun á Ischia

Göngur, matur og upplifun
8 dagtar/7 nætur
9. júní – 16. júní 2024
Fararstjóri: Ragnheiður Sveinbjörnsdóttir

Ferðalýsing: Ævintýraeyjan Ischia, stærsta eyja Napólíflóa en líklega sú lítt þekktasta. Þessi draumaeyja býður upp á margskonar upplifun sem við hjá Áfram Flakk ætlum að færa ykkur í formi hreyfingar, matar- og vínsmökkunar, slökunar og alls þess besta sem þessi græna eyja hefur upp á að bjóða.

Á Ischia er að finna ósnortna náttúru, langar baðstrendur, náttúruböð, framúrskarandi vínrækt og matarupplifun sem allt er ræktað af heimamönnum. Eyjan er oft kölluð Græna eyjan og ekki af ástæðulausu þar sem hún er einstaklega gróskumikil og býður upp á stórfenglegt panorama útsýni í allar áttir. Ischia býr ennþá yfir sínum upprunalega sjarma þar sem hún er að mörgu leyti ennþá ósnortin, ólíkt Capri t.d. sem er gríðarlega vinsæll áfangastaður meðal ferðamanna. Verðlagið á Ischia er viðráðanlegt og töluvert ódýrara en gengur og gerist á öðrum ferðamannastöðum Amalfi strandarinnar.

Á ferð okkar um Ischia munum við upplifa helstu gimsteina eyjunnar ásamt að njóta alls hins besta í mat og drykk. Þessi ferð er því sannarlega stórkostleg upplifun fyrir sál og líkama.

Skoða framboð og bóka

9-16. júní 2024 Fararstjóri

Bókun>>>
Veldu dagsetningu, smellið á Bóka til að skoða verð og framboð…

Dagur-1

Koma til Ischia

Beint flug með Icelandair frá Keflavík til Rómar, brottför kl 8:30 og áætluð lending kl 15:00. Rúta bíður okkar á flugvellinum í Róm og ekur okkur til Pozzuoli (ca. 3 klst) þar sem við tökum ferju yfir til Ischia, u.þ.b. klukkutíma sigling. Rútuferð frá höfninni á Ischia að Park Hotel Carlo Magno, í bænum Forio þar sem fer fram úthlutun herbergja og síðan kvöldmatur.

Dagur-2

Slökun og kvöldverður á A´Paranza Sea Restaurant

Við byrjum þennan dag í rólegheitum með morgunverði á hótelinu og síðar verða farþegar boðnir velkomnir af íslenskum gestgjafa sem búsett er á Ischia. Boðið er upp á drykk meðan farið er yfir dagskrá ferðarinnar ásamt fleiri atriðum sem gott er að vita. Eftir það er frjáls tími þar til síðdegis en þá förum við með rútu yfir til eins elsta bæjar Ischia, Ischia Ponte, þar sem hinn mikilfenglegi kastali Aragonese Castle gnæfir yfir og rammar inn umhverfið. Við borðum kvöldmat á veitingastaðnum A´Paranza Sea Restaurant og njótum hins fræga Biancolella víns sem framleitt er á Ischia.
Eftir matinn er hægt að rölta aðeins um bæinn eða njóta þess að sitja lengi og borða og drekka að ítölskum sið. Rúta heim á hótel að loknum kvöldverði.

Dagur-3

Monte Epomeo ásamt matarupplifun og vínsmökkun.

Við hefjum daginn á góðum morgunmat og rúta sækir hópinn á hótelið. Ekið er til bæjarins Serrara Fontana, þar sem gengið er inn í þéttvaxinn skóg, Frassitelli, og upp að dásamlegu svæði þar sem hægt er að njóta stórfenglegs útsýnis yfir bæinn Forio sem þekktur er fyrir einstaka gróðursæld og ríki villtu kanínunnar. Við höldum göngunni áfram og niður til Falagna, gegnum skóg þar sem vaxa kastaníutré og þar má sjá gömul steinhús sem einkenndu eyjuna áður fyrr. Áfram höldum við þar til að við komum á malarveg sem leiðir okkur að Pietra dell Acqua sem liggur upp á topp Epomeo fjalls, Punta San Nicola (789m). Þegar gengið er niður verður stoppað á einstökum veitingastað sem er einkennandi fyrir matarmenningu Ischia og hópnum er boðið upp á veitingar af heimagerðum mat sem skolað er niður með Biancolella víni. Eftir matinn tökum við stutta göngu þangað sem rútan bíður okkar og ekur heim á hótel. Kvöldmatur á hótelinu.

Erfiðleikastig: Miðlungs
Vegalengd: 6.8 km
Hæðarmunur: 420 m
Tímalengd: ca. 6 klst

Dagur-4

Cannavale ásamt matarupplifun og vínsmökkun.

Eftir morgunverð í dag liggur leiðin til bæjarins Faiano. Gengið verður frá Via Cretaio og í gegnum eina af elstu slóðum Ischia sem fólk notaði áður fyrr þegar verið var að safna vatni. Gengið er upp margar steintröppur þar sem kastaníuviðurinn víkur fyrir gríðarstórum vínekrum og hægt að njóta kyrrðarinnar í rólegheitum í Piano San Paolo. Við höldum áfram í áttina að Cannavale búgarðinum þar sem verður boðið verður upp á létta máltíð beint frá býli á meðan við njótum stórfenglegs útsýnis yfir flóann. Eftir smá hvíld og slökun verður hópurinn sóttur af rútunni og ekið heim á hótel þar sem gefst frjáls tími fyrir kvöldverð.

Erfiðleikastig: Miðlungs
Vegalengd: 6 km
Hæðarmunur: 200 m
Tímalengd: ca. 4 klst.

Dagur-5

Morgunverður og frjáls dagur

Í dag er frídagur og tilvalið að nota hann til að slaka á og njóta sundlaugarinnar og þess sem hótelið hefur upp á að bjóða. Einnig er mögulegt að skipuleggja ferðir til eyjanna í nágrenninu, Capri , Procida eða skreppa til Amalfi og Positano.
Þá er einnig hægt að njóta dagsins með heimsókn í Poseidon Garden, þar sem eru náttúruböð, sundlaugar og spa af ýmsum gerðum. Einnig er tilvalið að njóta dagsins í miðbænum eða á ströndinni svo fátt eitt sé nefnt.

Dagur-6

Á slóðum Biancolella ásamt matarupplifun og vínsmökkun

Við byrjum daginn á ljúffengum morgunverði áður en rútan sækir hópinn og ekur honum upp að þorpinu Campagnano. Þaðan liggur leið okkar til yfirgefna þorpsins Piano Liguori og á leiðinni blasir við fallegt útsýni yfir Napólíflóa. Á leiðinni munum við ganga meðfram matjurtagörðum og vínekrum sem kúra í hlíðunum hátt yfir sjávarmáli og þar gefur að líta stórkostlegt útsýni yfir Sgarrupata flóann. Við höldum svo göngunni áfram eftir gamalli gönguleið gegnum móberg og gömul goslög. Þegar komið er á áfangastað bíður okkar verðskulduð slökun ásamt því að smakka á mat og víni sem ræktað er af heimamönnum. Að því loknu hefjum við gönguna heim, gengið er niður bratta brekku sem er ein af elstu götum eyjunnar en þar bíður rútan eftir okkur og ekur okkur til baka á hótelið þar sem við snæðum kvöldmat og eigum skemmtilega stund.

Erfiðleikastig: Miðlungs/Erfitt
Vegalengd: 5 km
Hæðarmunur: 300 m
Tímalengd: ca. 6 klst

Dagur-7

Bátsferð í kringum Ischia

Við hefjum daginn á morgunverð á hótelinu áður en við verðum sótt og leggjum af stað í bátsferð umhverfis Ischia. Bátsferð í kringum Ischia er einstök upplifun og á leiðinni verður stoppað og býðst farþegum að baða sig í sjónum á ákveðnum stöðum. Léttur hádegisverður er í boði um borð, ásamt drykkjum og öðru meðlæti. Síðdegis kemur rúta og sækir hópinn þegar hann er kominn í land og ekur að hótelinu þar sem snæddur verður kvöldverður.
Farangur: Sandalar, baðhandklæði og sundföt

Dagur-8

Heimferð

Eftir morgunmat förum við með rútu niður að höfn og tökum ferjuna til Pozzuoli. Þar bíður okkar rúta sem ekur okkur á flugvöllinn í Róm fyrir heimflug til Keflavíkur. Áætluð brottför frá Róm er kl 16:00 og heimkoma kl 18:50

Upplýsingar

Innifalið

  • Beint flug fram og til baka með Icelandair
  • Flugvallargjöld og skattar ásamt ferðatösku og handfarangri
  • Rútuferð til og frá flugvelli og bátsferð frá Pozzuoli á áfangastaðinn Ischia
  • Standard hótelherbergi á 4 stjörnu hóteli – Park Hotel Carlo Magno
  • Fordrykkur í boði hótelsins
  • Hálft fæði (kvöld- og morgunmatur)
  • Matarupplifun og smakk í þeim göngum sem við á
  • Rúta til og frá hóteli í skoðunarferðir
  • Íslensk fararstjórn og leiðsögn með innlendum leiðsögumanni
  • Trygging (Centrale Operativa Ima Italia Assistance S.p.A. Opið allan sólarhringinn, læknisaðstoð)
  • Glaðningur frá Áfram Flakk

Ekki innifalið

  • Drykkir á meðan dvöl stendur
  • Borgarskattur/þjórfé (Ef við á)
  • Önnur persónuleg þjónusta á meðan dvöl stendur

Athugið:
Dagskrá getur verið breytileg vegna utanaðkomandi áhrifa t.d. veðurfar. Ekki er dregið úr fjölda né gæðum upplifunar. Breytingar á dagskrá innifela ekki í sér endurgreiðslu eða afslátt á ferð. Við bókun skal taka fram hverskonar fæðuóþol eða ofnæmi þannig að sem best sé hægt að koma til móts við þarfir allra gesta.

Bókanir

Til að bóka ferð er valin dagsetning efst undir “Skoða framboð og bóka” við viðkomandi ferð.

Verð fyrir tvíbýli 299.000 ISK fyrir tvo fullorðna á mann.
Verð fyrir einbýli 339.000 ISK.
Staðfestingargjald greiðist við bókun og er 35.000kr.

Skilmálar

Greiðslu upplýsingar

  • Greiðsla fer fram um örugga greiðslugátt hjá Teya, kerfin eru samtengd og eru greiðslur skráðar sjálfkrafa inn á þína bókun.
  • Staðfestingargjald á ferð eru 35.000 ISK per mann sem greiðist við bókun og er óafturkræft.
  • Fullgreiða þarf ferð 85 dögum fyrir brottför, við sendum greiðslulink með vefpóst 85 dögum fyrir brottför.

Afbókanir

Ef afbókað er 6 vikum fyrir brottför, er pöntun felld niður. Ef afbókað er seinna eða ef ekki er mætt er engin endurgreiðsla.

Áfram Flakk áskilur sér rétt til að fella niður ferðir eða sameina ferðir ef lágmarksþátttaka næst ekki.

Myndir